Framherji Orri Steinn Óskarsson á að baki 8 landsleiki og tvö mörk.
Framherji Orri Steinn Óskarsson á að baki 8 landsleiki og tvö mörk. — Ljósmynd/KSÍ

Knattspyrnumaðurinn Orri Steinn Óskarsson er efstur á óskalista spænska 1. deildarfélagsins Real Sociedad. Það er spænski miðillinn Marca sem greinir frá þessu en Orri Steinn, sem er einungis 19 ára gamall, er samningsbundinn Köbenhavn í dönsku úrvalsdeildinni. Köbenhavn hafnaði tilboði frá spænska félaginu Girona fyrr í sumar en hann á að baki 60 leiki fyrir Köbenhavn þar sem hann hefur skorað 22 mörk og lagt upp önnur átta til viðbótar.