Þorsteinn Gíslason fæddist í Reykjavík 11. janúar 1943. Hann lést á Vífilsstöðum 8. ágúst 2024.

Foreldrar Þorsteins voru Gísli Guðmundsson sjómaður, f. 6. júlí 1899 í Þjóðólfshaga í Holtum, d. 21. janúar 1971, og Guðbjörg Jónsdóttir húsfreyja, f. 28. september 1903 á Stokkseyri, d. 23. mars 1996. Systir Þorsteins er Ingibjörg Júnía, f. 19. desember 1933.

Þorsteinn giftist 22. ágúst 1970 Sigríði Gunnarsdóttur, f. 24. mars 1946, d. 30. júní 2021. Foreldrar Sigríðar voru Gunnar Einarsson bóndi, f. 16. desember 1904, d. 16. desember 1987, og Aðalheiður Ingveldur Jónsdóttir húsfreyja, f. 5. janúar 1911, d. 7. október 1991. Börn Þorsteins og Sigríðar eru fjögur: 1) Gísli, f. 27. janúar 1971. Eiginkona hans er Vala D. Jóhannsdóttir, f. 8. apríl 1973. Sonur þeirra er Þorsteinn, f. 2010. Stjúpsonur Gísla er Jóhann Ágúst, f. 2001. Fyrri eiginkona Gísla

...