Djassveisla Frítt er inn á viðburðinn í dag.
Djassveisla Frítt er inn á viðburðinn í dag.

Í tilefni af Menningarnótt verður boðið upp á djassveislu í Hafnartorg Gallery í dag milli klukkan 17 og 19. Fram koma þær Sara Mjöll Magnúsdóttir píanó- og hammondleikari og söngkonan Rebekka Blöndal ásamt þeim Andrési Þór Gunnlaugssyni, sem leikur á gítar, og trommuleikaranum Matthíasi Hemstock. Segir í tilkynningu að tilvalið sé að mæta og gera vel við sig í mat og drykk og njóta lifandi djasstónlistar. Aðgangur á viðburðinn er ókeypis.