Dularfullt póstkort barst bankanum Swansea Building Society í Wales á dögunum en samkvæmt dagsetningunni á póststimplinum skilaði bréfið sér um 121 ári of seint. Bankinn greinir frá þessu á Facebook og staðfestir að bréfið, sem…
Dularfullt póstkort barst bankanum Swansea Building Society í Wales á dögunum en samkvæmt dagsetningunni á póststimplinum skilaði bréfið sér um 121 ári of seint. Bankinn greinir frá þessu á Facebook og staðfestir að bréfið, sem stílað var á Lydiu Davies, hafi skilað sér á réttan stað en hún hafi búið á þessum stað fyrir yfir 100 árum. „Þetta er ótrúlegt, eiginlega svolítið óhugnanlegt. Frímerkið sjálft er af Játvarði konungi, hann var konungur frá 1901 til 1910,“ sagði hann og bætti við að það væri augljóst að bréfið væri afar gamalt. Nánar á K100.is.