Eftir gott spjall yfir kaffibolla datt mér í hug að ég gæti nýtt hann eitthvað frekar, og þá er ég ekki að tala um neitt kynferðislegt.

Pistill

Ásdís Ásgeirsdóttir

asdis@mbl.is

Vikan hefur verið annasöm á fréttadeildinni, enda eldgos hafið, harmleikur átti sér stað í Neskaupstað og tilkynnt var um óbreytta stýrivexti. Svo má ekki gleyma heitavatnsleysi á höfuðborgarsvæðinu í upphafi vikunnar og þeirri staðreynd að Pittarinn var hér á ferð á mótorhjóli. Ég á auðvitað við sjarmatröllið og kvikmyndastjörnuna Brad Pitt, en til hans sást í Dalakofanum á Laugum í Reykjadal.

Ekki ætla ég að tjá mig um eldgos, harmleik og alls ekki um stýrivexti. Umræða um stýrivexti er nefnilega svo niðurdrepandi og ekki vil ég að þið lokið bara blaðinu á blaðsíðu tvö. En heitavatnsleysið er skemmtilegt umræðuefni. Á mánudag, eftir að skrúfað var fyrir, fór ég að taka eftir vinum mínum á samfélagsmiðlum birta

...