ÁRBÆJARKIRKJA | Sr. Dagur Fannar Magnússon leiðir guðsþjónustuna þar sem við íhugum og ræðum andlega blindu. Stefán organisti leiðir söng ásamt félögum úr kirkjukór Árbæjarkirkju. BESSASTAÐAKIRKJA | Sumarmessur í Garðakirkju, alla sunnudaga kl
Víðstaðakirkja í Hafnarfirði
Víðstaðakirkja í Hafnarfirði — Morgunblaðið/Sigurður Bogi

ÁRBÆJARKIRKJA | Sr. Dagur Fannar Magnússon leiðir guðsþjónustuna þar sem við íhugum og ræðum andlega blindu. Stefán organisti leiðir söng ásamt félögum úr kirkjukór Árbæjarkirkju.

BESSASTAÐAKIRKJA | Sumarmessur í Garðakirkju, alla sunnudaga kl. 11. Bessastaðakirkja tekur þátt í Sumarmessunum. Sjá Garðakirkja hér í síðunni.

BÚSTAÐAKIRKJA | Kvöldmessa sunnudag kl. 20. Kammerkór Bústaðakirkju syngur undir stjórn Jónasar Þóris. Séra Sigríður Kristín Helgadóttir, séra Þorvaldur Víðisson og Sólveig Franklínsdóttir, æskulýðsfulltrúi, þjóna fyrir altari ásamt messuþjónum. Fermingarbörn og foreldrar boðin velkomin, en að helgihaldi loknu verður haldinn stuttur upplýsingafundur með foreldrum og fermingarbörnum um tilhögun fermingarstarfs í vetur.

DÓMKIRKJAN | Kveðjumessa Agnesar

...