Í dag verður listahátíð við heimili skáldsins Þórarins Eldjárns frá 15 til 18 í tilefni af 50 ára rithöfundarafmæli hans. Óhætt er að mæla með dagskránni við ljóðavini og tónlistarunnendur. Hver veit nema flutt verði vísan Ná og fáþrá: Undarleg er…
•Allar kveðjur og ábendingar vel þegnar.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Í dag verður listahátíð við heimili skáldsins Þórarins Eldjárns frá 15 til 18 í tilefni af 50 ára rithöfundarafmæli hans. Óhætt er að mæla með dagskránni við ljóðavini og tónlistarunnendur. Hver veit nema flutt verði vísan Ná og fáþrá:
Undarleg er sú þrá
ýmsu fólki hjá:
Síst vill það sjá og gá
en sífellt ná og fá.
Vísnagátan um liðna helgi var sem endranær frá Páli Jónassyni frá Hlíð og hljóðaði svo:
Á biki ótt mig áfram ber,
upp úr skóla bestur fer.
Baggar tveir
...