Markahæst Dagmar Guðrún Pálsdóttir skoraði sex mörk í gær.
Markahæst Dagmar Guðrún Pálsdóttir skoraði sex mörk í gær. — Morgunblaðið/Hákon Pálsson

Íslenska stúlknalandsliðið skipað leikmönnum 18 ára og yngri vann stórsigur á Angóla, 36:21, í leik um 25.-26. sæti á HM 2024 í Chuzhou í Kína í gærmorgun. Ísland hafnaði því í 25. sæti á mótinu. Ísland var 18:11 yfir í hálfleik og héldu íslensku stúlkurnar sama dampi í síðari hálfleik. Mörkin dreifðust jafnt hjá íslenska liðinu en markahæst var Dagmar Guðrún Pálsdóttir með sex mörk. Ásrún Inga Arnarsdóttir og Lydía Gunnþórsdóttir skoruðu fimm mörk hvor.