Steingrímur Axel Jóhannesson fæddist 5. júní 1927. Hann lést á dvalarheimilinu Hlíð 3. ágúst 2024.

Foreldrar hans voru Ragnar Axel Jóhannesson og Björg Þorkelsdóttir.

Eftirlifandi eiginkona hans er Marselína Gunnur Jónasdóttir. Börn þeirra eru Þórunn Sigríður, Ragnheiður Þorbjörg, Guðrún Ásgerður og Jónas Örn. Barnabörnin urðu níu og barnabörnin 16.

Útför hans fór fram frá Akureyrarkirkju 16. ágúst 2024 klukkan 13.

Í dag kveðjum við elsku afa Steina, hann er lagður af stað í sumarlandið. Það á líklegast að fara að opna almennilega kjörbúð þar og þá vantaði þann besta til að koma henni af stað. Ég minnist afa Steina á margan hátt, hann var bæði besti afi í heimi og besti vinur minn. Ég fór í minn besta skóla 10 ára gamall þegar ég fékk vinnu

...