Útlán til fyrirtækja hafa aukist.
Útlán til fyrirtækja hafa aukist.

Ný útlán til heimila að frádregnum uppgreiðslum námu 19,4 mö. kr. í júlí og jukust um rúma þrjá milljarða króna á milli mánaða. Verðtryggð útlán námu rúmum 35 mö. kr. en á sama tíma nam uppgreiðsla á óverðtryggðum lánum um 15,5 mö. kr. Meginþorri verðtryggðra lána var með breytilegum vöxtum líkt og undanfarna mánuði.

Verðtryggð lán til heimila námu um 156 mö. kr. á fyrstu sjö mánuðum ársins ársins en á sama tíma hafa heimilin greitt upp verðtryggð lán fyrir um 69 ma. kr., að meginþorra til á breytilegum vöxtum. Heimilin tóku í fyrra tæpa 170 ma. kr. í verðtryggð lán en greiddu upp óverðtryggð lán fyrir um 72 ma. kr.

Bílalán jukust lítillega í júlí og námu rétt rúmlega einum milljarði króna. Bílalán nema það sem af er ári um 5,9 mö. kr. en voru á sama tíma í fyrra um 10,8 ma. kr. og 19 ma. kr. yfir árið í

...