Jóhann Berg Guðmundsson, landsliðsfyrirliði í knattspyrnu, er genginn til liðs við sádiarabíska félagið Al-Orobah. Jóhann kemur til Al-Orobah frá Burnley á Englandi en hann endursamdi við enska félagið fyrr í sumar og lék aðeins einn leik á nýhöfnu…
Félagaskipti Jóhann Berg Guðmundsson samdi í Sádi-Arabíu.
Félagaskipti Jóhann Berg Guðmundsson samdi í Sádi-Arabíu. — Ljósmynd/Alex Nicodim

Jóhann Berg Guðmundsson, landsliðsfyrirliði í knattspyrnu, er genginn til liðs við sádiarabíska félagið Al-Orobah.

Jóhann kemur til Al-Orobah frá Burnley á Englandi en hann endursamdi við enska félagið fyrr í sumar og lék aðeins einn leik á nýhöfnu tímabili með liðinu, þar sem hann skoraði í 5:0-sigri á Cardiff.

Landsliðsmaðurinn skrifaði undir eins árs samning við Al-Orobah sem er nýliði í efstu deild í Sádi-Arabíu.