Það gladdi mig mjög að heyra í annars sorglegum fréttum að Sérsveitin hefði kallað til samningamann í aðför sinni gagnvart manni sem sýndi ógnandi hegðun. Og að þessum samningamanni hefði tekist að koma á sáttum

Elísabet Kristín Jökulsdóttir

Það gladdi mig mjög að heyra í annars sorglegum fréttum að Sérsveitin hefði kallað til samningamann í aðför sinni gagnvart manni sem sýndi ógnandi hegðun. Og að þessum samningamanni hefði tekist að koma á sáttum. Mér vitanlega hefur Sérsveitin ekki nýtt sér þessar leiðir og hefði örugglega borið árangur þegar Hrafn Jökulsson bróðir minn var handtekinn á sínum tíma. Ég vona að það hafi m.a. leitt til þess að Sérsveitin notfæri sér nú leið samninga og kalli fólk til þess.

Elísabet Jökulsdóttir

skáld

Höfundur er skáld.