Skoruðu Luis Díaz og Mo Salah fagna marki á Anfield í gær.
Skoruðu Luis Díaz og Mo Salah fagna marki á Anfield í gær. — AFP/Darren Staples

Liverpool vann sanngjarnan heimasigur, 2:0, á Brentford í 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í gær. Luis Díaz og Mo Salah sáu um að gera mörkin í frumraun hollenska knattspyrnustjórans Arnes Slots á Anfield. Getur Hollendingurinn lítið kvartað yfir byrjuninni, þar sem liðið er með tvo örugga sigra í fyrstu tveimur leikjunum.

Ríkjandi meistarar Manchester City eru einnig með tvo sigra eftir sannfærandi heimasigur á Ipswich, 4:1, á laugardag. Sammie Szmodics kom reyndar Ipswich yfir á 7. mínútu en City svaraði með þremur mörkum frá Erling Haaland og einu frá Kevin De Bruyne.

Arsenal er einnig með fullt hús eftir sterkan útisigur á Aston Villa, 2:0. David Raya í marki Arsenal varði nokkrum sinnum mjög vel og hinum megin skoruðu Leandro Trossad og Thomas Partey í seinni hálfleik.

...