„Mér finnst þetta eiginlega ekki vera söluvara. Mér finnst þetta eitthvað meira en það,“ segir listamaðurinn Tolli Morthens en hann hyggst ekki selja málverk sem fauk út í veður og vind á dögunum og fannst síðan aftur
Landslag Málverkið fræga var að mestu leyti unnið uppi á hálendi.
Landslag Málverkið fræga var að mestu leyti unnið uppi á hálendi. — Morgunblaðið/Árni Sæberg

Elínborg Una Einarsdóttir

elinborg@mbl.is

„Mér finnst þetta eiginlega ekki vera söluvara. Mér finnst þetta eitthvað meira en það,“ segir listamaðurinn Tolli Morthens en hann hyggst ekki selja málverk sem fauk út í veður og vind á dögunum og fannst síðan aftur.

Sagan af því þegar Tolli týndi málverkinu birtist í Morgunblaðinu á fimmtudag en sama dag hafði björgunarsveitin í Kópavogi samband því liðsmenn sveitarinnar höfðu fundið verkið við hálendisgæslu.

Þetta var rétt í tæka tíð fyrir sýningu á verkum Tolla sem var opnuð á laugardag

...