40 ára Pétur ólst upp á Svalbarðs­eyri en býr á Akur­eyri. Hann er verkstjóri hjá Mjólkursamsölunni á Akureyri. Áhugamál Péturs eru körfubolti, fótbolti, tölvuleikir og ferðalög.


Fjölskylda Eigin­kona Péturs er Eydís Stefanía Kristjánsdóttir, f. 1987, barnabókavörður á Amtsbókasafninu. Börn þeirra eru Aron Emil, f. 2009, Elvar Breki, f. 2012, og Emma Karen, f. 2016. Foreldrar Péturs: hjónin Þröstur Óskar Kolbeins, f. 1958, búsettur á Akureyri, og Svala Stefánsdóttir, f. 1961, d. 2023.