Jazzhátíð í Reykjavík hefst í kvöld, 27. ágúst. Boðið verður upp á fimm daga tónleikadagskrá þar sem djass og spunatónlist verða í forgrunni en þar koma bæði íslenskt listafólk og erlendir gestir fram. Megindagskrá hátíðarinnar fer fram í Norðurljósum Hörpu en festa má kaup á kvöldpassa fyrir hvert kvöld hátíðarinnar fyrir sig á vefnum Tix.is. Í kvöld koma fram Stórsveit Reykjavíkur, gítarleikarinn Mikael Máni og tríóið Hist og.