Það varð uppi fótur og fit þegar HK og KR áttu að mætast í 17. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu, fimmtudaginn 8. ágúst í Kórnum í Kópavogi. Fresta þurfti leiknum vegna brotins marks í Kórnum og tókst ekki að útvega annað mark sem stæðist þær kröfur sem gerðar eru til marka í efstu deild

Bjarni Helgason

bjarnih@mbl.is

Það varð uppi fótur og fit þegar HK og KR áttu að mætast í 17. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu, fimmtudaginn 8. ágúst í Kórnum í Kópavogi.

Fresta þurfti leiknum vegna brotins marks í Kórnum og tókst ekki að útvega annað mark sem stæðist þær kröfur sem gerðar eru til marka í efstu deild.

KR-ingar fóru fram á að félaginu yrði dæmdur sigur í leiknum, 3:0, vegna ófullnægjandi vallaraðstæðna en upphaflega var kærunni vísað frá af aga- og úrskurðarnefnd KSÍ. Vesturbæingar áfrýjuðu þeim úrskurði og fóru fram á að málið fengi efnislega umfjöllun.

Mikið grín var gert að KR-ingum fyrir að fara með málið alla leið, en af hverju samt? Að mínu mati átti kærugleði

...