Enrique Llorens Izaguirre fæddist í Madríd á Spáni 25. júní 1937. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi 11. ágúst 2024.

Foreldrar hans voru Carmen Izaguirre og Enrique Llorens Ases.

Enrique kvæntist Elínborgu Sigurðardóttur, f. 6. ágúst 1943, d. 11. júlí 1972. Barn þeirra er Díana Carmen Llorens Izaguirre, f. 1969.

Eftirlifandi eiginkona Enrique er Auður Finnbogadóttir, f. 21. október 1953. Þau kynntust árið 1974 og gengu í hjónaband árið 1994. Börn þeirra eru Silvía Llorens, f. 1978, og Finnbogi, f. 1980.

Enrique, sem var oftast
kallaður Kike, var einn af sjö systkinum og eru tveir bræður hans á lífi, búsettir í Madríd.

Kike ólst upp í Madríd. Eftir skólagöngu sinnti

...