Chris Hemsworth
Chris Hemsworth

Ástralski leikarinn og vöðvatröllið Chris Hemsworth kom óvænt fram á tónleikum hins enska Ed Sheerans í Búkarest í Rúmeníu á laugardaginn, 24. ágúst.

Hemsworth settist óvænt við trommusettið og lék fyrir um 70 þúsund gesti, þeim til ómældrar gleði. Var uppákoman tekin upp fyrir aðra þáttaröð Limitless With Chris Hemsworth, eða Takmarkalaust með Chris Hemsworth, sem sýnd verður á streymisveitu Disney+ og National Geographic á næsta ári en sú fyrsta hefur verið aðgengileg þar og hlotið góðar viðtökur.

Sheeran deildi í framhaldi upptöku á Instagram af þessum gjörningi og skrifaði þar að Hemsworth hefði lært trommuleik til að geta komið fram á tónleikum hans. Ekki fer sögum af frammistöðu Hemsworth við settið en greinilegt af myndum að hann naut sín vel.