Gangandi vegfarandi gekk fram á lík í fjörunni á Álftanesi laust fyrir hádegi í gær.

Sævar Guðmundsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sagði í samtali við mbl.is í gær að ekki væri búið að bera kennsl á manninn en lögreglan hefði grun um hver hann væri.

Ekki er ljóst hvernig maðurinn lést en lögreglu grunar ekki að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti.

Málið er nú til rannsóknar hjá lögreglu en að sögn Sævars er það ekki rannsakað sem sakamál. hng@mbl.is