— Samsett mynd/Youtube/Colourbox

Mikið gekk á hjá bandarísku hjónunum Rebeccu og Danya Mahota 8. ágúst þegar Rebecca, sem var ólétt, missti vatnið. Þau drifu sig á sjúkrahúsið en á leiðinni varð ljóst að yngri dóttir þeirra gat ekki beðið lengur eftir því að koma í heiminn og fæddist heilbrigð stúlka við vegkantinn. Ævintýrið var þó ekki á enda, því eftir að sjúkrabíll hafði komið fjölskyldunni á spítala áttaði Danya sig á því að giftingarhringurinn hans var horfinn. Hann fór í heljarinnar leit og fannst hringurinn svo á fæðingarstað dótturinnar.

Fylgstu með jákvæðum fréttum á K100.is.