Verk eftir Damien Hirst.
Verk eftir Damien Hirst.

Fyrsta stóra perluuppboð vetrarins hjá Gallerí Fold er hafið en því lýkur mánudaginn 2. september. Sýning á verkunum stendur nú yfir en sjálft uppboðið fer fram á vefnum myndlist.is.

Mörg einstaklega fín og fágæt verk verða boðin upp að þessu sinni, segir í tilkynningu. Fyrst eru nefnd verk eftir frumherjana svokölluðu; Þórarin B. Þorláksson, Jóhannes Kjarval, Ásgrím Jónsson, Þorvald Skúlason og Jóhann Briem. Þá er einnig vakin athygli á verkum Karólínu Lárusdóttur sem verða boðin upp, verkum Louisu Matthíasdóttur og Temmu Bell dóttur Louisu, auk verka eftir Kristján Davíðsson, Svein Björnsson, Braga Ásgeirsson, Tryggva Ólafsson, Alfreð Flóka, Karl Kvaran og Jón Engilberts. Einnig verða boðin upp verk eftir Ragnar Axelsson, Kristján Guðmundsson, Guðjón Ketilsson og svo mætti lengi telja.