Tónlistarkonan Guðlaug Sóley Höskuldsdóttir, eða gugusar, heldur sína fyrstu einkatónleika í fullri lengd á Kaffi Flóru annað kvöld, 29. ágúst, kl. 21.

„Það er erfitt að skilgreina tónlist gugusar samkvæmt einni tónlistarstefnu. Tónlistin hennar fer um víðan völl og á ekki heima í neinu boxi. Tónlistin getur verið draumkennd, róleg og lagræn, en á svipstundu breytist það í drum & bass,“ segir m.a. í kynningartexta. Miðar fást á vefnum Tix.is.