Þýskaland Jón Dagur er orðinn leikmaður Herthu Berlínar.
Þýskaland Jón Dagur er orðinn leikmaður Herthu Berlínar. — Ljósmynd/Hertha Berlín

Knattspyrnumaðurinn Jón Dagur Þorsteinsson er kominn til þýska félagsins Hertha Berlín frá OH Leuven í Belgíu og skrifar undir til ársins 2027. Jón Dagur lék með Leuven frá árinu 2022 eftir að hann kom frá AGF í Danmörku. Hann skoraði 19 mörk í 68 leikjum með Leuven. Hann hefur þá skorað fimm mörk í 37 A-landsleikjum. Hertha er á öðru tímabili sínu í B-deildinni eftir fall tímabilið 2022/2023. Þar á undan var liðið níu tímabil í röð í efstu deild.