Kristófer Acox, fyrirliði Íslandsmeistara Vals í körfuknattleik, meiddist illa á hné þegar nokkrar sekúndur voru liðnar af oddaleik Vals og Grindavíkur í úrslitaeinvígi Íslandsmótsins á Hlíðarenda hinn 29. maí. Hann vonast til þess að snúa aftur á völlinn eftir áramót eftir þrjár aðgerðir og stranga endurhæfingu. » 22