Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í gær vegna konu á sjötugsaldri sem missti meðvitund í Silfru á Þingvöllum. Konan var í hópi ferðamanna í köfunarferð á vegum ferðaþjónustufyrirtækis. Útkallið barst klukkan korter yfir 15 og laust fyrir…
— Morgunblaðið/Eyþór Árnason

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í gær vegna konu á sjötugsaldri sem missti meðvitund í Silfru á Þingvöllum. Konan var í hópi ferðamanna í köfunarferð á vegum ferðaþjónustufyrirtækis. Útkallið barst klukkan korter yfir 15 og laust fyrir klukkan 16 var konan komin með meðvitund og fékk strax aðhlynningu. Hún var flutt á Landspítalann til nánari skoðunar. Einar Á.E. Sæmundsen, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum, segir að leiðsögumaður hafi brugðist skjótt við og allt hafi að lokum endað vel.