Jarðir Vatnsdalur heillar erlenda fjárfesta til jarðakaupa.
Jarðir Vatnsdalur heillar erlenda fjárfesta til jarðakaupa. — Morgunblaðið/Einar Falur

Fasteignasalar hjá Eignamiðlun fasteignasölu hafa undanfarið sett sig í samband við bændur í Vatnsdal í Húnavatnssýslu og falast eftir bújörðum til kaups fyrir hönd erlendra aðila. Tilgangurinn er að ráðast í skógrækt til kolefnisjöfnunar.

„Ég fékk svona símtal um daginn frá Eignamiðlun,“ segir Valur Magnússon, bóndi á Helgavatni í Vatnsdal, og bætir því við að fasteignasalinn hafi nefnt að hann hringdi fyrir hönd erlendra aðila sem hefðu hug á jarðakaupum í Húnaþingi. „Til skógræktar, sagði hann,“ segir Valur, spurður hvort upplýst hafi verið um fyrirætlanir hinna erlendu aðila. » 2