Noregur Sveinn Aron Guðjohnsen á að baki 19 A-landsleiki og tvö mörk.
Noregur Sveinn Aron Guðjohnsen á að baki 19 A-landsleiki og tvö mörk. — Morgunblaðið/Eggert

Knattspyrnumaðurinn Sveinn Aron Guðjohnsen er að ganga til liðs við norska úrvalsdeildarfélagið Sarpsborg. Það er norski miðillinn Nettavisen sem greinir frá þessu en Sveinn Aron, sem er 26 ára gamall, hefur leikið með Hansa Rostock í Þýskalandi frá því í janúar. Hann hefur einnig leikið með Spezia, Ravenna, OB og Elfsborg á atvinnumannaferlinum. Sarpsborg er með 23 stig í ellefta sæti norsku úrvalsdeildarinnar.