40 ára Þuríður ólst upp í Kópavogi til átta ára aldurs en síðan í Reykjavík og býr í Vogahverfinu. Hún er viðskiptafræðingur að mennt frá HÍ árið 2008 og kírópraktor frá 2015. Hún er kírópraktor á Kírópraktorstöðinni á Sogavegi. Hún er einnig gjaldkeri Kírópraktorfélags Íslands. Þuríður æfði fimleika með Gerplu í 18 ár og stundar núna crossfit. Áhugamálin eru fjölskyldan, útivist og allt sem snýr að hreyfingu.

Fjölskylda Eiginmaður Þuríðar er Evert Víglundsson, f. 1972, eigandi Crossfit Reykjavíkur og yfirþjálfari. Sonur þeirra er Jökull Aron, f. 2021, og börn Everts eru Teresa, f. 2001, og Anton Smári, f. 2007. Foreldrar Þuríðar eru hjónin Bergþóra Haraldsdóttir, f. 1958, starfsmaður lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, og Guðmundur Ómar Þráinsson, f. 1957,

...