Sýningin Seeking Solace, með verkum Hildar Elísu Jónsdóttur, verður opnuð í Y gallery á morgun, föstudag, milli klukkan 18 og 19. „Seeking Solace skyggnist inn í andstæða heima faglegs ytra byrðis atvinnulífsins og innri átaka…
Tjáning Af sýningu Hildar.
Tjáning Af sýningu Hildar.

Sýningin Seeking Solace, með verkum Hildar Elísu Jónsdóttur, verður opnuð í Y gallery á morgun, föstudag, milli klukkan 18 og 19.

Seeking Solace skyggnist inn í andstæða heima faglegs ytra byrðis atvinnulífsins og innri átaka nútímafólks,“ segir m.a í sýningartexta. „Textarnir í Seeking Solace eru innblásnir af hispurslausum og einlægum myndböndum á TikTok, en þeir varpa ljósi á hina djúpstæðu tvískiptingu milli þess hversu frjálslega fólk tjáir sig á netinu og svo verndarhjúpsins sem það sveipar um sig í daglegu lífi sínu. Þegar örlítið truflaðar og ofurmannlegar játningarnar eru tvinnaðar saman við forneskjuleg en tignarleg þjóðlögin verður svikaraheilkennið í textunum enn meira áberandi.“ Sýning Hildar Elísu stendur til 28. september.