Skipulagsstofnun hefur komist að þeirri niðurstöðu að fyrirhuguð Þjóðarhöll í Laugardal í Reykjavík milli Laugardalshallar og Suðurlandsbrautar þurfi ekki að fara í umhverfismat. Þjóðarhöllin á að vera fjölnota mannvirki fyrir íþróttir, menningu,…
Byggingarsvæði Þjóðarhöllin á að rísa sunnan við Laugardalshöllina.
Byggingarsvæði Þjóðarhöllin á að rísa sunnan við Laugardalshöllina. — Morgunblaðið/sisi

Skipulagsstofnun hefur komist að þeirri niðurstöðu að fyrirhuguð Þjóðarhöll í Laugardal í Reykjavík milli Laugardalshallar og Suðurlandsbrautar þurfi ekki að fara í umhverfismat.

Þjóðarhöllin á að vera fjölnota mannvirki fyrir íþróttir, menningu, kennslu og viðburði og uppfylla kröfur alþjóðlegra íþróttasambanda um aðbúnað fyrir alþjóðlega kappleiki innanhúss. Gert er ráð fyrir að húsið verði 20 þúsund fermetrar að stærð og rúmi allt að 8.600 manns í sæti og allt að 12.000 manns á viðburðum. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist sumarið 2025 og þeim ljúki árið

...