Vinnuslys varð á byggingarsvæði í Urriðaholti í gær. Tilkynning um slysið barst lögreglu laust fyrir klukkan 16 og voru þrír sjúkrabílar og einn dælubíll sendir á vettvang.

Í tilkynningu lögreglu um slysið segir að það hafi verið mjög alvarlegt. Skúli Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir einn hafa verið fluttan á sjúkrahús. Ekki fengust frekari upplýsingar um líðan mannsins.