Jónína Þórarinsdóttir fæddist 18. júní 1946 á Suðureyri í Tálknafirði. Hún lést á heimili sínu í faðmi fjölskyldunnar 20. ágúst 2024.

Foreldrar hennar voru Þórarinn Jónsson, f. 10.9. 1904, d. 3.6. 1973, og Pálína Guðrún Einarsdóttir, f. 22.3. 1911, d. 31.5. 2002.

Jónína var fimmta af átta börnum Þórarins og Pálínu. Eftirlifandi systur Jónínu eru: Kristín Lára, f. 12.2. 1940, Guðrún, f. 5.5. 1942, Alda, f. 30.12. 1947, Gróa, f. 13.8. 1949, og Sigurborg, f. 16.6. 1951. Látin eru Einar, f. 7.2. 1935, d. 20.6. 2010, og Sóley, f. 22.2.1937, d. 24.11. 2005.

Eftirlifandi eiginmaður Jónínu er Ingimundur Árnason vélstjóri frá Akranesi, f. 27.8. 1945. Þau eignuðust þrjá syni: Árna, f. 13.2. 1975, Þórarin, f. 14.4. 1978, og Ægi, f. 15.7. 1980. Barnabörnin eru

...