Meiddur Ómar Ingi Magnússon missir af stórleik helgarinnar.
Meiddur Ómar Ingi Magnússon missir af stórleik helgarinnar. — Morgunblaðið/Eggert

Ómar Ingi Magnússon, leikmaður íslenska karlalandsliðsins í handknattleik og Þýskalandsmeistara Magdeburg, glímir við meiðsli þessa dagana. Hann verður því fjarverandi á sunnudaginn þegar Magdeburg mætir Füchse Berlín í þýska meistarabikarnum. Í tilkynningu þýska félagsins kemur fram að meiðsli Ómars Inga séu ekki alvarleg og hann ætti því að vera klár í slaginn þegar Magdeburg tekur á móti Wetzlar í 1. umferð þýsku 1. deildarinnar.