— Úr myndinni Ljósvíkingar

„Einu skiptin sem ég er kominn svona snemma í umferðina er þegar ég er að hitta ykkur,“ sagði Helgi Björns sem lenti í umferðaróhappi á leiðinni í viðtal í Ísland vaknar í vikunni. Hann bað vegfarandann innilegrar afsökunar í þættinum. „Það var alveg svakaleg umferð sem ég slepp nú yfirleitt við. Af því að ég reiknaði mér hálftíma en var samt að verða of seinn, þá var ég farinn að vera ólöglegur í umferðinni. Varð glæfralegur og varð næstum valdur að slysi,“ sagði Helgi sem sagði frá nýju lagi sínu, Í faðmi fjallanna, í þættinum.

Nánar á K100.is.