Móðurástin á sér yfirleitt engin takmörk, það telst í eðli móður að vernda börn sín hvað sem á dynur. Þegar stjúpbörn bætast við, sem birtast óvænt á tröppunum að föðurnum látnum, geta málin flækst. Inngangurinn lýsir því í stuttu máli út á hvað…
Írland Ahern-ættin glímir við ýmsa djöfla.
Írland Ahern-ættin glímir við ýmsa djöfla.

Björn Jóhann Björnsson

Móðurástin á sér yfirleitt engin takmörk, það telst í eðli móður að vernda börn sín hvað sem á dynur. Þegar stjúpbörn bætast við, sem birtast óvænt á tröppunum að föðurnum látnum, geta málin flækst.

Inngangurinn lýsir því í stuttu máli út á hvað írsku dramaþættirnir Smother ganga, en RÚV sýnir nú þriðju og síðustu þáttaröð þessarar framleiðslu Íranna. Leikkonan Dervla Kirwan fer með hlutverk ættmóðurinnar Val Ahern. Hún á í miklum vandræðum með ofdekruð og spillt börn sín, barnabörn og önnur ættmenni, sem glíma við fíkn og alls konar raskanir.

Val reynir að valda alla reiti og vernda, með misgóðum árangri. Fyrsta þáttaröðin var nokkuð góð og sú næsta ágætis afþreying. En þessi þriðja þáttaröð er komin út í tóma vitleysu og fer

...