„Er þetta dýraverndunarsambandið?“, segir Stefán í símann. „Komiði strax! Í garðinum okkar situr bréfberi uppi í tré og hann hefur verið að beita hundinn okkar andlegu ofbeldi í heilan klukkutíma!“

Krakkarnir eru í grettukeppni í frímínútum. Eftir miklar vangaveltur segir dómarinn í keppninni: „Halldór, þú vannst grettukeppnina!“ Halldór: „En ég var ekki með!“

Jói: „Hún er alveg hræðileg þessi mengun. Í gær keypti ég dós af sardínum og hvað heldur þú? Hún var full af olíu og fiskarnir allir dauðir!“

„Þjónn, hvað eru þessar svörtu agnir í súpunni minni?“ „Ég veit það ekki herra, en við skulum vona að þær séu bara vítamín!“