Vísnagáta síðustu viku kom að vanda frá Páli Jónassyni og var svohljóðandi: Þetta dýr við ána er, einnig getur verið skinn. Í glasi kaldur glitrar hér, gátu ráddu, vinur minn. Magnús Halldórsson var fljótur með lausnina: Við ána jafnan bjórinn býr, bjór með hærðan, eru dýr

Halldór Blöndal

halldorblondal@simnet.is

Vísnagáta síðustu viku kom að vanda frá Páli Jónassyni og var svohljóðandi:

Þetta dýr við ána er,

einnig getur verið skinn.

Í glasi kaldur glitrar hér,

gátu ráddu, vinur minn.

Magnús Halldórsson var fljótur með lausnina:

Við ána jafnan bjórinn býr,

bjór með hærðan, eru dýr.

Á barnum glitrar bjórinn skýr,

en botninn svona dáldið rýr.

Þá Guðrún Bjarnadóttir:

Í útlöndum við ár er bjór.

Einnig bjór er húðin þín.

Bjór í

...