Lydía Edda Thejll fæddist 24. september 1933. Hún lést 16. ágúst 2024. Útför hennar fór fram 28. ágúst 2024.

Elsku amma Dídí, við munum sakna þess að koma í heimsókn til þín, það var alltaf svo notalegt og alltaf í boði súkkulaði sem maður mátti eiginlega ekki hafna.

Þegar við vorum litlar fengum við oft að gista á Þórsgötunni og þá fórum við alltaf að kaupa pítsu á horninu sem ömmu fannst ekki einu sinni góð. Um kvöldið var alltaf í boði apaís og við hlustuðum saman á hljóðbækur tímunum saman.

Við fórum einnig í ófáa ísbíltúrana saman og keyptum ís með mjög miklu af heitri súkkulaðisósu sem að sjálfsögðu lak alltaf út um allt. Ef amma gat ekki komið með vorum við oft sendar út með „spjaldið“ hennar til að kaupa okkur ís.

Amma kunni líka svo sannarlega að

...