Esper­ance Fu­erz­ina er form­lega sú kona sem er með flest húðflúr og flest­ar lík­ams­skreyt­ing­ar í sög­unni. Af líkama hennar eru 99,98% þakin húðflúr­um en að auki er hún með 89 lík­ams­skreyt­ing­ar. Fu­erz­ina, sem er 36 ára göm­ul og fyrr­verandi hermaður frá Banda­ríkj­un­um, er þannig skreytt frá toppi til táar. Húðflúr­in þekja jafnvel viðkvæm­ari svæði eins og tungu, tann­hold, augn­hvítu og kyn­færi. Hún seg­ist sjálf hafa breytt lík­ama sín­um í hreyf­an­legan striga sem fylg­ir þem­anu „að umbreyta myrkri í feg­urð“.

Nánar um málið á K100.is.