Dúna Bjarnadóttir fæddist 11. júní 1936. Hún lést 22. júlí 2024. Útför Dúnu fór fram 9. ágúst 2024.

Mig langar að minnast Dúnu, þessarar eðalkonu sem ég var svo heppinn að kynnast. Það var Ragnari Bjarnasyni söngvara að þakka en Dúna var systir hans. Við fórum oft í kaffiboð til hennar, sem var eitt það glæsilegasta sem um getur á þessu sviði. Á heimili Dúnu var píanó sem þýddi það að við Ragnar vorum alltaf með smá söngprógramm þegar þessu glæsilega veisluboði var lokið.

Ég kveð þessa góðu konu og hafi hún hjartans þökk fyrir allt.

Lækkar lífdaga sól.

Löng er orðin mín

...