Guðlaugur Gunnar Björnsson fæddist 21. desember 1956. Hann lést 16. ágúst 2024. Útför Gunnars fór fram 29. ágúst 2024.

Elsku besti frændi minn. Það er stórt skarð höggvið í hópinn við ótímabært fráfall þitt.

En það sem ég er moldríkur af góðum og skemmtilegum minningum með þér. Eins og ferðir á ættarmót á gamla Benz, sólarlandaferð til Mallorca, mörg gamlárskvöld vorum við saman fjölskyldurnar, fýlaveiðar og verkun og veislur. Frændi leysti stundum af í kúasæðingum og fór ég stundum með honum sem pjakkur. Þá voru allflestir sveitavegir malarvegir en það skipti nú engu máli fyrir frænda, alltaf var keyrt eins og druslan dró og ekkert droll né hangs. Hestaferðir og hinir og þessir reiðtúrar, réttarferðirnar eru margar ríðandi saman. Ein ferð stóð nú alveg upp úr hjá okkur haustið ‘99, mikið erum við búnir að rifja það upp og hlæja saman eins og

...