Petra Benedikta Kristjánsdóttir fæddist 15. mars 1952. Hún lést 14. ágúst 2024. Útför var 26. ágúst 2024.

Elsku Petra mín, kallið kom fyrr en þú áttir kannski von á, þú varst mikið náttúrubarn, enda leið þér alltaf best í sveitinni eitthvað að brasa. Okkar vinskapur hófst þegar við unnum saman á Vistheimilinu Sólborg fyrir margt löngu, áhugamál okkar lágu saman eins og t.d. hestamennska sem við elskuðum báðar. Þú varst líka mikil baráttukona fyrir ýmsum málaflokkum í okkar samfélagi t.d. mannréttindum. Áttum við gjarnan góð skoðanaskipti um hin ýmsu málefni. Í gegnum árin héldum við alltaf góðum vinskap með símtölum og heimsóknum hvor til annarrar þótt við byggjum hvor í sínum landshlutanum, sem ég held að hafi gefið okkur báðum mikið.

Nú kveð ég þig, elsku vinkona, mikið á ég eftir að sakna þín, ég trúi því að við hittumst aftur í

...