Sigur Leikmenn Tindastóls fagna sigrinum gegn Keflavík í gær.
Sigur Leikmenn Tindastóls fagna sigrinum gegn Keflavík í gær. — Ljósmynd/Jóhann Helgi

Fall blasir við Kelfavík eftir tap gegn Tindastóli, 2:1, í 19. umferð Bestu deildar kvenna í knattspyrnu á Sauðárkróki í gær. Keflvíkingar eru í neðsta sæti deildarinnar með tíu stig, þegar tveimur umferðum er ólokið, en Tindastóll er nú sex stigum frá fallsæti í áttunda sætinu eftir sigurinn.

Þá styrkti Þór/KA stöðu sína í þriðja sæti deildarinnar með sigri gegn FH, 1:0, á Akureyri á laugardaginn. Sandra María Jessen skoraði sigurmark leiksins í upphafi síðari hálfleiks. Hennar 20. mark í deildinni í sumar í 18 leikjum og er hún langmarkahæst.

Tindastóll – Keflavík 2:1

1:0 Jordyn Rhodes 23.

1:1 Melanie Forbes

...