Jón Gunnarsson
Jón Gunnarsson

Jón Gunnarsson, alþingismaður í Suðvesturkjördæmi og fyrrverandi dómsmálaráðherra, segir óheppilegt ef tillögur að hagræðingu í rekstri Landhelgisgæslunnar sem hann lét vinna fyrir ráðuneytið séu ekki til skoðunar. Spara megi háar fjárhæðir með öðru rekstrar­formi í eftirlitsfluginu og nefnir hann 400-600 milljónir á ári í því sambandi, eftir því hvaða leið væri farin.

Jón segir að TF-SIF sé dýr í rekstri og betur væri farið með fé ef farnar væru aðrar leiðir til að halda úti eftirlitsflugi með landhelginni. Jón lét gera skýrslu fyrir ráðuneytið sem var á lokametrunum þegar hann hætti sem ráðherra. Sérfræðingar og álitsgjafar í þeirri vinnu voru að hans sögn sammála um að of dýrt væri að reka eina vél eins og Landhelgisgæslan geri með TF-SIF.

Þegar Jón viðraði þá hugmynd að selja TF-SIF og fara aðrar leiðir mætti hann andstöðu hjá Gæslunni. Ein hugmyndin var að kaupa vél sem notuð er í Noregi og kallast King Air 350 ER. Segir hann að hjá Gæslunni telji menn að

...