Sveinn Jóhannsson fæddist 3. febrúar 1954. Hann lést 18. ágúst 2024. Útför Sveins fór fram 29. ágúst 2024.

Faðir okkar, Sveinn Jóhannsson, var maður andstæðna; sterkur, klár og stundum erfiður. Hann var bæði kennari og járnsmiður, hlutverk sem endurspegluðu persónuleika hans vel, þekking og kunnátta blandað við styrk, grófleika og eldfimt skap.

Sumar af bestu minningum okkar eru einföldu lautarferðirnar sem pabbi fór með okkur í, oft á leiðinni heim úr skóla. Þetta voru ekki neinar merkilegar ferðir, bara tækifæri fyrir hann til að leggjast á mjúkt gras og kitla okkur með stráum – ef maður hreyfði sig tapaði maður. Hann hreyfði sig auðvitað aldrei og virtist frekar njóta þagnarinnar, og tapaði sjaldan, hvort sem það var í þessum leik eða öðrum.

Pabbi var klár og elskaði góða áskorun, sérstaklega í

...