Georg Hreinn Ragnarsson fæddist
4. apríl 1933. Hann varð bráðkvaddur
7. júlí 2024.

Georg var jarðsunginn 15. júlí 2024.

Elsku Venni.

Hjartans þakkir fyrir yndislegan vinskap í 30 ár, þó að við séum í Svíþjóð þá tölum við oft um þig og minnumst þín með mikilli gleði. Við höfum alltaf haft gott samband þó að við séum flutt. Við sendum fjölskyldunni innilegar samúðarkveðjur.

Guðlaugur (Gulli), Birna (Bidda) og börn.