Það skerst í odda með e-m eða milli e-a merkir að það verður ágreiningur með þeim. Ósamkomulagið getur verið vægt en getur líka orðið mannskætt. Svipað gildir um orðtakið það slær í brýnu með e-m; það getur bæði þýtt rifrildi milli hjóna og átök…

Það skerst í odda með e-m eða milli e-a merkir að það verður ágreiningur með þeim. Ósamkomulagið getur verið vægt en getur líka orðið mannskætt. Svipað gildir um orðtakið það slær í brýnu með e-m; það getur bæði þýtt rifrildi milli hjóna og átök hervelda. Vörumst bara að blanda þessu saman og láta t.d. „slá í odda“ með e-m.