50 ára Daði er fæddur og uppalinn á Eskifirði og býr þar. Hann útskrifaðist frá Stýrimannaskólanum árið 1998 og var fyrst skipstjóri á Hólmaborg en hefur síðan verið skipstjóri á Aðalsteini Jónssyni. Áhugamálin eru laxveiði og Miðfjarðará. „Ég hef tekið algjöru ástfóstri við þá á.“


Fjölskylda Maki Daða er Sædís Eva Birgisdóttir, f. 1985, launafulltrúi hjá Eskju. Dóttir þeirra er Erna Björk, f. 2019. Synir Daða eru Elfar Aron, f. 1998, og Bjarki Steinn, f. 2009, og stjúpsonur hans og sonur Sædísar er Ívar Kári, f. 2008. Barnabarn Daða er Embla Ýr Elfarsdóttir, f. 2021. Foreldrar Daða eru hjónin Þorsteinn Kristjánsson, f. 1950, forstjóri Eskju og fv. skipstjóri á Hólmaborg, Aðalsteini Jónssyni og Jóni Kjartanssyni, og Björk Aðalsteinsdóttir, f. 1952, húsmóðir, búsett á Eskifirði.