„Bilunin er í ánni sjálfri og við erum búnir að vera að bora festingar fyrir nýjan streng á brúna, hann kemur núna klukkan átta í kvöld,“ sagði Sigurður Guðfinnsson, aðstoðarverkstjóri Rarik á Selfossi, í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi þar sem …
— Morgunblaðið/Jónas Erlendsson

„Bilunin er í ánni sjálfri og við erum búnir að vera að bora festingar fyrir nýjan streng á brúna, hann kemur núna klukkan átta í kvöld,“ sagði Sigurður Guðfinnsson, aðstoðarverkstjóri Rarik á Selfossi, í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi þar sem hann stóð í ströngu með sínu fólki við að útbúa lagningu nýs rafmagnsstrengs yfir Jökulsá á Sólheimasandi, en forverinn brast í fyrrinótt með þeim afleiðingum að íbúar Mýrdals, þar á meðal Víkur, urðu án rafmagns og símasambands um nokkra hríð.